ALGENGAR SPURNINGAR

HVAÐ ERU STÖÐUHÝSI?

  • Stöðuhýsi eru færanleg hús byggð á sterka undirvagna með hjólum, sem gerir þau auðveld í flutningi og niðursetningu. Þau eru frábært kostur sem sumarhús, gestahús eða heilsárs vistaverur.

HVERSU STÓR ERU STÖÐUHÝSIN?

  • Stöðuhýsin koma í mismunandi stærðum, frá 15 til 56 m². Viðskiptavinir geta valið útgáfu sem hentar þeirra þörfum best.

HVERJIR ERU HELSTU KOSTIR STÖÐUHÝSA?

  • Einn af helstu kostum stöðuhýsa er sveigjanleikinn sem fylgir því ða hafa þau á hjólum. Þau eru tilbúin til flutninga, þægilega og rúmgóð. Húsin koma fullbúin með svefnherberjum, stofu, baðherbergi og eldhúsi.

GET ÉG SÉRSNIÐIÐ STÖÐUHÝSIÐ EFTIR MÍNUM ÞÖRFUM?

  • Já, húsin eru klæðskerasniðin eftir kröfum viðskiptavina hvað varðar efnisval, tæki og tól. Hægt er að bæta við ýmsum aukahlutum og breyta skipulagi eftir þörfum.

HVERNIG ER UPPSETNING STÖÐUHÝSA?

  • Ferlið er mun einfaldara en við hefðbudnar byggingar. Eftir að húsið er komið á staðinn er það jafnað af á frostfríar undirstöður. Þegar húsið hefur verið tengt við vatn, rafmagn og frárennsli af fagfólki, er hægt að flytja inn. Við mælum með því að kaupendur hugi að leyfismálum og jarðvinnu tímanlega áður en húsið mætir á svæðið. 

ERU HÚSGÖGN INNIFALIN MEÐ STÖÐUHÝSINU?

  • Já, stöðuhýsin koma með húsgögnum, þannig að þau eru tilbúin til notkunar strax við afhendingu.

HVERS KONAR AÐSTAÐA ER Í STÖÐUHÝSINU?

  • Hvert hús inniheldur eitt, tvö eða þrjú fullbúin svefnherbergi, stofu með húsgögnum, fullbúið baðherbergi og fullbúið eldhús með öllum tækjum og húsgögnum.

HVAÐA ÚTGÁFUR ERU Í BOÐI?

  • Húsin koma í tveimur útgáfum: Economy Standard og Premium Standard. Hægt er að bæta ýmsum aukahlutum og sérsníða eftir þörfum viðskiptavina.
Shopping Cart